Eftir miklar vangaveltur ákváðum við systur að veðja á Viridian vítamín- og bætiefnalínuna. Það kemur aðallega til að því hversu vel sú lína er hugsuð og vönduð. Og líka vegna þess að flest þau efni sem hún inniheldur, eru ræktuð og unnið í landinu þar sem hún er framleidd, þ.e. í Bretlandi. Viridian er að miklu leyti úr vottuðu lífrænum jurtum, inniheldur engin fylliefni og ekkert djönk. Þess vegna nýtist innihald þeirra 100%.
Virdian er margverðlaunað fyrirtæki fyrir einstök gæði og hugmyndaauðgi og hefur hvað eftir annað hlotið fyrstu verðlaun; Natural & Organic Award, á virtustu heilsusýningu heims, fyrir bestu vítamín-, bætiefni, jurtir og drykkjarblöndunar í Evrópu.
Það er ágætt fyrir okkur mörg að vita að 50% af þeim töflum/vítamínum sem eru á markaðnum í dag innihalda aukaefni, lím eða bindiefni sem halda töflunum / hylkjum saman. Fyrir magra er þetta býsna leiðinleg staðreynd en aðra, sem eru viðkvæmir fyrir þessum efnum, er þetta því miður raunverulegt vandamál. Virdian vítamínin og bætiefnin eru aðeins framleidd í hylkjum sem búin eru til úr aðalbláberjum, spirulina og alfaafla. En með því að að forðast að nota öll óhrein aukaefni (nasties) hefur Viridian tekist að sýna fram á að það er mögulegt að framleiða og búa til vítamín sem hæfa flestum.
Svo er hitt ekki síður mikilvægt en það er að Viridian, sem er farsælt fjölskyldufyrirtæki, leggur ríka áherslu á að láta gott af sér leiða, svo með því að kaupa Viridian eruð þið líka að leggja öðrum lið, því fyrirtækið gefur talsverða fjármuni til góðgerðarmála.
En fyrsta spurningin er; af hverju vítamín og bætiefni?
Af langri reynslu er innlegg okkar systra þetta: Ef fólk gætir þess að borða ávallt fullkomlega samsetta fæðu, og lífræna að auki og ef það sleppir hvítu klórþvegnu hveiti og samskonar sykri, drekkur ekki gosdrykkri, fær næga holla fitu, lifir streitulausu lífi, notar ekki lyf, er með meltinguna í lagi, hreyfir sig reglulega, hvílist vel og er hvorki með ofnæmi né óþol og svo framvegis, þá þarf fólk líklega ekki á vítamínum eða bætiefnum að halda. En þannig er það því miður hjá fæstum. Auðvitað má fólk heldur ekki að missa sig í vítamín- og bætiefninntöku. Þar þarf að vanda valið. Það er því mikilvægt að fræðast og leita á náðir þeirra sem þekkinguna hafa og bjóða aðeins upp á það besta.
Þá er frábært að segja frá því að Virdian fékk nýlega vottun sem fyrsta fyrirtækið í heiminum sem ekki notast við pálmaolíu.
PS: Viridian línan spannar allt vítamín- , jurta- og bætiefnalitrófið og er jafnt þekkt fyrir vönduð vítamín, lækningajurtir, olíur, tinktúrur og síðast en ekki síst frábærar vítamín-, bætiefna- og olíublöndur.
Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka. LOKA
Persónuvernd
Privacy Overview
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.