Select Page

Kaffihús

KAFFIHÚSIÐ OKKAR

Matseðillinn á kaffihúsi / Boðefnabar Systrasamlagsins samanstendur af ljúfri, hollri og léttri fæðu og drykkjum. Þar á meðal þeytingum, dásamlegum jurtalatté-um, cacaó-i,  lífrænu kaffi, grautum, Acai- og þriggja laga skálum, súrdeigssamlokum og opnum súrdeigsbrauðsneiðum, súpum, sterkum skotum o.fl. Að ólgeymdum ómótstæðilegum lífrænum kökum og mörgu sem bundið er árstíðum.

Allar veitingarnar okkar eru meira og minna unnar úr lífrænu gæðahráefni sem við fáum m.a. frá Græna hlekknum, Kaju organics, Rude Health, Bíóbú og Bíóna, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Margt er vegan. Hellingur glútenlaus. Flest lífrænt. En ekkert bragðlaust.

Kaffið okkar…
…er lífrænt Mið-Ameríkukafffi með lífrænni Bíóbú, möndlurísmjólk heslihnetumjólk, haframjólk, kókosmjólk. Þú getur fengið latté, cappuccino, cortado, flat white, americano, eða INDÍGÓ, með gheei, kókosolíu, lucumu og bourbon vanillu.