100% lífræn rósmarín kjarnaolía
100% lífræn rósmarín camphor kjarnaolía
Rósmarín er sígrænn runni og forn lækninga- og ilmjurt, upprunnin við Miðjarðarhafið, sem kýs helst sólríka staði með kalkríkum jarðvegi. Rósmarín er dæmigerð planta í lágvöxnu kjarrlendi (svokölluðu *garrigue* og *maquis*), en hún er einnig ræktuð sem kryddjurt. Til forna var rósmarín helgað Afródítu og táknaði trúfesti. Rósmarín var eitt af innihaldsefnum hins fræga „ungverska vatns“ (Hungarian Water), sem er eitt magnaðasta ilmvatn sögunnar. Það er einnig hluti af kryddblöndunni „Herbes de Provence“ og mikilvægt hráefni í ilmvatns-, snyrtivöru- og lyfjaframleiðslu.
2.700 kr.




