Pistill

BESTU LÆKNINGASVEPPIRNIR OG HVAÐ ÞEIR GERA FYRIR ÞIG?

Greinar | heilsan

Úrval af hágæða lækningasveppum eins og Lion’s Mane, Chaga, Cordyceps, Turkey Tail og Reishi fást af allra bestu gæðum Systrasamlagingu. Hver hefur sinn tilgang og einstaka virkni. Lækningasveppir tilheyra flokki sveppa sem hafa verið notaðir til lækninga í hundruðir ára. Lækningasveppir eru í dag vinsælt rannsóknarefni vísindamanna en undanfarna áratugi hafa þeir náð miklum vinsældum á Vesturlöndum

REISHI, RAUÐUR OG LÍFRÆNN FYRIR SLÖKUN OG SVEFN:
Reishi sveppir hafa verið notaðir í hefðbundinni kínverskri læknisfræði í þúsundir ára til að hjálpa til við að auka Qi eða „líforku“ manns. Á sama tíma benda nútíma vísindi til þess að reishi geti hjálpað þér að takast á við streitu og stutt náttúrulega við ónæmiskerfið. Þetta er vegna mikils magns af bólgueyðandi triterpenes og fjölsykrum. Reishi hefur verið notaður gegn sjálfsofnæmissjúkdómum líkt og liðagigt, MS og lúpus og einnig lifrarbólgu B og C, vefjagigt, HIV/AIDS og herpes vírus.

CORDYSEPS – LÍFRÆNN, GÓÐUR ORKUGJAFI
Cordyceps eru vinsælir í alþýðu læknisfræði. Taldir gagnast allt frá ónæmiskerfinu til að auka kynhvöt. Nú á dögum eru vísindamenn að rannsaka cordyceps fyrir getu sveppsins til að draga úr þreytu, auka orku og bæta almennan íþróttaárangur. 

TURKEY TAIL – LÍFRÆNN FYRIR GÓÐA MELTINGARHEILSU
Turkey tail sveppurinn er nefndur eftir litríkum mynstrum í ávexti sveppsins.
Í hefðbundinni kínverskri læknisfræði er hann notaður til að meðhöndla raka og slím, t.d. í meltingarvegi. Í nútímanum hafa vísindamenn tengt Turkey Tail við bætta ónæmisheilsu. Þeir færa okkur einnig prebiotic trefjar, sem næra gagnlegu bakteríurnar í þörmum og stuðla að góðri meltingarheilsu. 

CHAGA – LÍFRÆNN OG VILLTUR FYRIR ÓNÆMISKERFIÐ OG GEGN STREITU:
Kallaðir konungur allra sveppa. Styður við ónæmiskerfið, heilsu húðarinnar, hjarta- og æðakerfi og almenna vellíðan. Lækkar m.a. kólesteról og líka blóðssykur.

LION’S MANE – LÍFRÆNN OG ÖFLUGUR FYRIR HEILA OG GEGN KVÍÐA OG STREITU
Einn öflugasti Lion’s Mane Bretlands sem hjálpar við einbeitingu, stjórnun á streitu, í baráttu gegn kvíða, við að koma jafnvægi á skap og styður við þína náttúrulegu ónæmisvörn. Lions Mane er þekktur fyrir að örva framleiðslu á vexti taugafrumna eða NGF (Nerve Growth Factor). NGF spilar stórt hlutverk í að viðhalda heilbrigðu taugakerfi en of lítið magn af honum er tengt við fyrstu stig af elliglöpum og Alzheimer.

Það er ærin ástæða til að hafa þessa góðu lækningasveppi sem hluta af lífi okkar.

Skoða frá ERBOLOGY HÉR:

Lion’s mane frá Viridian

Chaga frá Viridian.

Secret Link