Pistill

FJÖLSKYLDUHUGLEIÐSLA á ÓÐINSTORGI m/Thelmu Björk og Systrasamlaginu 19. ágúst

Almennt | Greinar | Jóga

Systrasamlagið í samvinnu við Thelmu Björk jóga-, hugleiðslu og listnámskennara stendur að notalegum hugleiðsluviðburðum fyrir alla fjölskylduna mánaðarlega í sumar á Óðinstorgi.

Hugleiðsluviðburðirnir á Óðinstorgi verða á eftirfarandi föstudögum:

24. júní, á Jónsmessu kl. 10:00 (er yfirstaðinn).

22. júlí kl.10:00. Hér fáum við góðan gest. Völu Sólrúnu tónheilara sem sækir okkur heim úr Hlíðunum. Vala er einstaklega gefandi tónheilari. Hún lærði tónheilun og hjá Acutonics í Englandi en grunnur Völu liggur í tónlist en hún lauk BA prófi í tónsmíðum og meistaragráðu, m.mus, í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi við tónlistardeild LHÍ. Vala lærði hljóðfræði og hljóðupptökur við SAE Institute í London. (er yfirstaðinn)

19. ágúst kl. 10:00, hugleiðslustund með Thlemu Björk. Allir velkomnir. Kippið með ykkur teppi og jafnvel jógadýnu.


Þess má geta að í framhaldi af þessum viðburði verður áframhaldandi regluleg hugleiðsla með Thelmu Björk í Systrasamlaginu.

Í ljósi 5 ára sögu Systrasamlagsins um ókeypis vikulega og afar vinsæla hugleiðslu með Thelmu Björk, fyrir alla, allt árið um kring, er nú lag að fara út á hið fagra og þægilega Óðinstorg og hugleiða með allri fjölskyldunni undir berum himni.
Hægt er að tylla sér hvar sem er á torginu enda innbyggð sæti útum allt í hönnun þess.

Við leggjum ríka áherslu á börnin fái að njóta með fullorðna fólkinu.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Hugleiðsluviðburðirnir eru í samvinnu við Sumarborgina.

Secret Link