Pistill
HAMINGJAN FELST Í GÓÐRI MELTINGU. VITRINGARNIR ÞRÍR FYRIR HÁTÍÐINA
Greinar | Uncategorized
Þegar við borðum mikið, eins og jafnan um jólin, er mjög mikilvægt að við meltum matinn almennilega. Ferlið á að vera þannig að þegar þú meltir matinn leysast úr læðingi meltingarensím í smáþörmunum. Ensím sem hjálpa til við að brjóta niður efnasambönd í matnum og gera matinn smærri svo hægt sé að koma honum áleiðis í gegnum meltinguna. Hlutverk ensímanna er einmitt að brjóta niður matinn til að koma í veg fyrir uppþembu, óþægindi og vindverki í þessu ferli.
Lág magasýra er svo önnur saga sem einnig hefur valdið fólki miklum óþægindum. Margir glíma við lágt sýrustig sem þó er til sáraeinföld lausn við. En hvernig veistu hvort þú ert með magasýruvandamál?
Mjólkurþistill er ansi mögnuð jurt sem hefur öfluga andoxunarvirkni. Hann er sannarlega talinn styrkja starfssemi lifrarinnar og hafa góð áhrif á kólesteróljafnvægið. 2000 ára saga um noktun mjólkurþistils til að meðhöndla vandamál í lifur og gallblöðru segir sína sögu. Mjólkurþistill hreinsar bæði og verndar og er af flestum talin besta fáanlega næringin fyrir lifur. En þrátt fyrir langa sögu var það samt ekki fyrr en á 8. áratugnum að vísindamenn fóru að rannsaka mjólkuþistilinn að gagni. Mjólkurþistill er ein af fáum jurtum sem á sér ekkert jafngildi úr heimi hefðbundinna lyfja.