Pistill
HEITUSTU HEILSUTRENDIN 2021. BYLTINGIN ER AÐ HEFJAST
Ayurveda | Greinar | heilsan | Jóga
Það að sannfæra kjötætuna er um að gerast vegan er mikil barátta. Það að mæta henni á miðri leið er mun er vænlegra til árangurs. Vegan í miðri viku og flex um helgar verður kannski markmið ennþá fleiri árið 2021. Margir vilja líka halda í fiskmetið og þetta flotta orð SÆKERAR, yfir grænmetisætur sem borða fisk, spratt upp í Systrasamlaginu á árinu. Það leikur þó engin vafi á því að vegan mun halda áfram að dafna en um leið og krafan um meiri næringu er orðin sterkari mun næringarríkt grænkerafæði án alls vafa dafna mest allra “isma”.
Á líkamsræktarmarkaðnum höfum við fengið að sjá meiriháttar framfarir í fíngerðum mælingum sem geta núorðið næstum mælt púlsana þrjá (eins og í ayurveda), breytileika á hjartsláttartíðni, hita í húð, glúkósamagni og mörgu öðru. Með auknum áhuga á eftirliti með eigin heilbrigði má búast við að tæknimælingar blómstri sem aldrei fyrr árið 2021. En það breytir þó engu um það að útvistin hefur sigrað “innivistina” og ef fram heldur sem horfir verða skíðaskotfimi og sjóböð í hæstu hæðum árið 2021. En jógað og hugleiðslan hvika hvergi.