Pistill
HUGLEIÐSLUMARAÞON Í MIÐBORGINNI laugardaginn 20. júlí. Öll velkomin!!
Ayurveda | Greinar | heilsan | Jóga
strasamlaginu. Hún mun leiða okkur í gegnum möntruhugleiðslu.Í hugleiðslu með möntrum er farið með endurtekna þulu í huganum eða upphátt til að ná hlutlausum huga og til að slökkva á truflandi hugsunum. Með möntrusöng er unnið með orð eða röð orða sem eru endurtekin til að framkalla breytingu á huga og vitund. Að sögn Thelmu Bjarkar færir það henni hugarró að syngja möntrur. Það sefar hugann og hjálpar okkur að losa upp óæskileg hugsanamynstur sem valda okkur hugarangri
11:00 Össi Árnason er fyrrum sjómaður og kvikmyndagerðamaður. Hann fór til Indlands og lærði jógakennarann og hefur síðasta áratug haft brennandi áhuga á andlegum og líkamlegum málefnum. Hann kynnir okkur fyrir kirtan hugleiðslu og mætir með gítarinn. Sanskrít orðið „kirtana“ þýðir „að endurtaka“. Kirtan er frábær leið til að róa taugarnar og sefa hugann, sem verður þá náttúrulega hneigður til að hugleiða. Kirtan er upphaflega æft með sanskrít möntrum en það er í raun hægt að gera það á hvaða tungumáli sem er, svo framarlega sem tilfinningin og hugarfarið er til staðar.
s þar sem hún hefur kennt hindímál og indverska menningu síðan 2022. Hún er fædd og uppalin á Indlandi og hefur iðkað ayurveda, chanting og Bhakti jóg sem saman mynda stoðir indverskrar hugleiðslu. Shilpa segir forna indverska heimspeki sjálfstyrkjandi. Hún hefur haldið meira en 50 afar vinsæla fyrirlestra á Íslandi með áherslu á indversku reynsluvísindin.Dr. Shilpa lítur á heiminn sem eina stóra fjölskyldu og sér sig sem sendiherra innri friðar, friðar á milli fólks og milli okkar og alheimsins. Eina markmið hennar er að verða betri manneskj
a.
en hún hún er með meistaragráðu úr Tónlistardeild LHÍ, auk þess sem hún lærði hljóðfræði og hljóðupptökur við SAE Institute í London. Vala miðlar tónheilun sem er heilandi meðferð sem byggir á hljóðbylgjum sem streyma um líkamann og losa um spennu og uppsafnaðar stíflur sem myndast við áföll og annað mótlæti sem við verðum fyrir í lífinu. Tónheilun getur umbreytt lærðu hegðunarmunstri sem við sitjum uppi með, munstri sem ekki þjónar neinum tilgangi og getur aftrað heilbrigðu flæði á leið okkar í lífinu.