Pistill

HVERNIG GETUM VIÐ LIFAÐ LENGRA OG BETRA LÍFI?

Greinar | VÖRUMERKI

Hvernig getum við lifað heilbrigðara lífi lengur? Þessi vangavelta er sannarlega mikilvæg í ljósi nýrra vísindalegra tíðinda þar sem skoðaður var munurinn á raunaldri og líffræðilegum aldri fólks. Í ljós kom að yngra fólk sýndi merki um meiri öldrun á skemmri tíma en þau sem eldri eru. 

Hvernig getum við snúið þessarri þróun við, eða að minnsta kosti reynt? Það vissulega hægt með margvíslegum hætti; mataræði, minni streitu og hreyfingu. En það sem er á margra vörum einmitt núna er efni sem kallað er NAD+. Rannsóknir hafa sýnt fram á náið samband milli heilbrigðrar öldrunar, langlífis og magns NAD+ (ásamt forverum þess, NMN og NR) í líkama okkar. Þetta eru efni sem styðja við almenna heilsu frumna okkar.
En ef náttúrulegt magn NAD í líkamanum fer minnkandi með aldrinum. Er þá hægt að koma jafnvæginu aftur í lag og lengja tímabilið sem við lifum við góða heilsu? 

Skilningur á langlífi og öldrun
Hvað þýðir langlífi? Langlífi er skilgreint sem það að „lifa lengi“. Orðið er dregið af latnesku orðunum „longus“ (langur) og „aevum“ (aldur). Upphaflega vísaði orðið einfaldlega til þess að lifa lengi, en í nútímasamhengi er frekar átt við lengd þess tíma sem við lifum við góða heilsu. Þetta er stundum kallað „peakspan“. Öldrun er eðlilegur hluti af lífinu og er erfðafræðilega forrituð í okkur. Þegar við eldumst byrja frumur okkar að starfa með minni skilvirkni sem getur leitt til aukinnar bólgu og oxunarálags. Um þetta er gjarnan talað sem einkennandi fyrir öldrun. 

Hvers vegna virkni hvatbera skiptir sköpum fyrir heilbrigði frumna?
Hvatberar eru orkuver frumunnar. Þeir gegna jafnframt lykilhlutverki varðandi öldrun og þróun sjúkdóma sem tengjast aldrinum.  Rannsóknir benda á að heilbrigð virkni hvatbera, orkujafnvægi og hæfni til að takast á við álag séu grundvallarþættir fyrir bestu mögulegu virkni frumna. Það er því mikilvægt að vernda hvatbera og frumur í heild sinni til að tryggja orkuframleiðslu frumna. Auk þess styðja vel virkir og heilbrigðir hvatberar við starfsemi vöðva, heila og ónæmiskerfis, og jafnframt að viðgerðarferlum líkamans (endurheimt) með því að framleiða þá orku sem líkaminn þarfnast til að gróa.  

Hvernig framleiðum við orku?
Hver einasta fruma líkamans þarfnast orku. Þessi orka kemur fyrst og fremst frá orkuframleiðslu frumna, það er að segja ferlinu þar sem ATP (adenósín-trífosfat) er myndað. Rannsóknir á þessu sviði eru enn á frumstigi og vísindamenn eru rétt að byrja að skilja ferlið til fulls í mannslíkamanum og áhrif þess á heilsu okkar. Lykilþættirnir þar eru Krebs-hringurinn og rafeindaflutningskeðjan (ETC), ásamt hlutverki nikótínamíð-adenín-dínúkleótíðs (NAD+). 

Hvað er NAD+
NAD+ er hjálparensím sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir ensím sem knýja orkuframleiðslu, þar sem það flytur rafeindir á milli efnahvarfa. Í einfaldri framsetningu er Krebs-hringurinn  (sítrónusýruhringurinn) röð efnahvarfa sem eiga sér stað í hvatberum og stuðla að niðurbroti fæðu og losun orku sem er bundin í henni. Krebs-hringurinn myndar mjög lítið af ATP en framleiðir í staðinn mikið magn „orkuflutningssameinda“, þar á meðal NADH (sem myndast úr NAD+), en þær nýtast í rafeindaflutningskeðjunni. Það er einmitt í rafeindaflutningskeðjunni – sem einnig er staðsett í hvatberunum – sem meirihluti ATP-framleiðslu frumunnar fer fram.  Styrkur NAD+ minnkar með aldrinum og sterk tengsl eru á milli hærri styrks NAD+ og lengri líftíma ásamt góðri heilsu. 

Hlutverk NAD fyrir heilsu okkar til lengri tíma litið
NAD+ er að finna í öllum lifandi frumum mannslíkamans og er mikilvægt hjálparensím við orkuframleiðslu, þar sem það flytur rafeindir á milli efnahvarfa. NAD+ knýr viðgerðir á DNA og kemur við sögu hjá fjölskyldu boðpróteina (sirúínum) sem eru háð NAD+. Þar stýra þau bólguviðbrögðum, viðhaldi hvatbera og ferlum við viðgerðir á DNA-inu. Minnkun á magni NAD+ í mannslíkamanum tengist almennt öldrun og veldur truflun á starfsemi hvatbera, uppsöfnuðum skemmdum á DNA, langvarandi bólgu og aukinni hættu á efnaskiptasjúkdómum. 

UNG KONANæringarefni sem geta stutt við náttúrulega NAD-framleiðslu líkamans
Nikótínamíð er það form B3-vítamíns sem veldur ekki roða í húð og er forveri NAD+. [10] Nikótínamíð breytist í nikótínamíð-monónúkleótíð (NMN), sem síðan breytist í NAD+. Inntaka nikótínamíðs getur aukið magn NAD+ á áhrifaríkan hátt hjá heilbrigðum fullorðnum einstaklingum. 

Nikótínamíð-ríbósíð (NR) er eitt af þeim formum NAD+-forvera sem rannsökuð hafa verið hvað mest. Fjölmargar rannsóknir á fullorðnum einstaklingum sýna að inntaka NR – hvort sem um er að ræða stakan skammt eða yfir nokkra mánuði – leiðir stöðugt til aukins NAD+-magns þegar upphaflegt magn er lágt.  Rannsóknir hafa leitt í ljós að bæði nikótínamíð (B3-vítamín) og NR komast tiltölulega auðveldlega inn í frumur þar sem bær breytast í NMN og að lokum í NAD+. Hins vegar breytist NMN oft í NR í líkamanum áður en það kemst inn í frumuna.
Meiri rannsóknir hafa leitt í ljós frekari kosti. Í ljós hefur komið að fæðubótarefni með NAD+ auka á áhrifaríkan hátt magn NAD+ í líkamanum og styðja jafnframt við ýmsa þætti góðrar heilsu, þar á meðal í tengslum við bólguviðbrögð, vitræna virkni og hjarta- og æðaheilsu.

Hvernig er NMN í samanburði við NR?
Ef bæði NMN og NR eru forverar NAD+, eru þá einhverjir kostir við að velja annað fram yfir hitt? NMN úr fæðubótarefnum þarf að breytast í NR til að komast inn í frumuna. Þótt NMN sé nær NAD+ inni í frumunni, er það í raun fjær því þegar litið er til fæðubótarefna.  

Kóensím Q10 (Co-Q10) er öflugt andoxunarefni sem gegnir einnig mikilvægu hlutverki í orkuframleiðslu frumna. Líkaminn framleiðir það náttúrulega. Allar frumur eru viðkvæmar fyrir skorti á Co-Q10 og slíkur skortur hefur verið tengdur við aldurstengda sjúkdóma, svo sem taugahrörnunarsjúkdóma. Co-Q10 leikur lykilhlutverk sem kóensím í rafeindaflutningskeðjunni (ETC) og við orkuframleiðslu frumna. Co-Q10 virkar einnig sem andoxunarefni í þessu ferli og kemur í veg fyrir skemmdir á frumunni við orkuframleiðsluna. Co-Q10 minnkar í líkamanum með aldrinum frá náttúrunnar hendi. Framleiðsla líkamans nær hámarki snemma á fullorðinsárum, yfirleitt um tvítugt, en fer síðan hægt minnkandi. Um sextugt getur hún hafa minnkað um allt að 50%.
Þreyta tengist náið skorti á orku í frumum og auknum bólgum í líkamanum. Bent hefur verið á að Co-Q10 geti haft jákvæð áhrif í þessu samhengi. Í kerfisbundinni úttekt á þreytu var horft til 13 rannsókna þar sem samtals 1.126 þátttakendur fengu viðbótarskammt af Co-Q10, á bilinu 60–500 mg á dag. Niðurstöðurnar sýndu jákvætt samband milli lengdar meðferðar og minnkunar á þreytu. Ennfremur tengdist lægra magn Co-Q10 hjá þátttakendum aukinni þreytu.  

E-vítamín tekur ekki beinan þátt í orkuframleiðslu, en það er mjög mikilvægt til að styðja við heilbrigði frumna og minni bólgu. Helsta hlutverk E-vítamíns er að vernda og koma á stöðugleika frumuhimna, þar á meðal hvatberahimnu, með því að draga úr bólgu og oxunarálagi sem aftur styður við orkuframleiðslu frumna óbeint.

Niðurstaða
Það að styðja við heilbrigði frumna er grundvallaratriði fyrir langlífi í besta skilningu þess orðs. Því skilvirkari sem frumurnar okkar eru við að framleiða orku og stjórna bólgu og oxunarálagi, því lengri eru lífslíkurnar.  Langlífi í þessum skilningi hefur áhrif á alla þætti heilsu, allt frá liðheilsu og beinheilsu til bólgu og vitsmunalegrar heilsu. Það getur því verið mjög áhrifaríkt að styðja við heilbrigði frumna með markvissum hætti og taka inn vandað og virkt NAD+, ásamt því auðvitað að borða betur, minnka streitu og hreyfa sig. 

Heimildir

Verdin E. NAD+ in aging, metabolism, and neurodegeneration. Science. 2015; 350 (6265) 1208-1213
Ruszkiewicz JA, Bürkle A, & Mangerich A. Fuelling genome maintenance: On the versatile roles of NAD+ in preserving DNA integrity. Journal of Biological Chemisty. 2022; 298 (6) 102037 [https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S002192582200477X]
Imai SI, & Guarente L. NAD+ and sirtuins in aging and disease. Trends in Cellular Biology. 2014; 24 (8) 464-471[https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/24786309/]
Poljšak B, Kovač V, Špalj S, Milisav I. The Central Role of the NAD+ Molecule in the Development of Aging and the Prevention of Chronic Age-Related Disease: Strategies for NAD+ Modulation. International Journal of Molecular Science. 2023; 24 (3) 2959
Patel P, & Rout P. Vitamin B3. StatPearls. 2024; Available online.  [10/04/2026]
Zhang W, Ren H, Chen W, Hu B, Feng C, Li P, Shi Y, & Fang J. Nicotinamide phosphoribosyltransferase in NAD+ metabolism: physiological and pathophysiological implications. Cell Death Discovery. 2025; 11, 371
Ito TK, Sato T, Takanashi Y, Tamannaa Z, Katamoto T, Odagiri K, & Setou M. A single oral supplementation of nicotinamide within the daily tolerable upper level increases blood NAD+ levels in healthy adults. Translational Medicine of Aging. 2021; 5, 43-51
Damgaard MV, & Treebak JT. What is really known about the effects of nicotinamide riboside supplementation in humans. Science Advances. 2023; 9 (29) eadi4862
Rahman SU, Qadeer A, & Wu Z. Role and Potential Mechanisms on Nicotinamide Mononucleotide in Aging. Aging and Disease. 2024; 15 (2) 565-583
Campbell JM. Supplementation with NAD+ and Its Precursors to Prevent Cognitive Decline across Disease Contexts. Nutrients. 2022; 14 (15) 3231
Manzar H, Abdulhussein D, Yap TE, & Cordeiro MF. Cellular Consequences of Coenzyme Q10 Deficiency in Neurodegeneration of the Retina and Brain. International Journal of Molecular Sciences.
Pallotti F, Bergamini C, Lamperti C, & Fato R. The Roles of Coenzyme Q10 in Disease: Direct and Indirect Involvement in Cellular Function. International Journal of Molecular Sciences. 2021; 23 (1) 128
Aaseth J, Alexander J, & Alehagen U. Coenzyme Q10 supplementation – In ageing and disease. Mechamisms of Ageing and Development. 2021; 197, 111521
Lacourt TE, Vichaya EG, Chiu GS, Gantzer R, & Heijnen CJ. The High Costs of Low-Grade Inflammation: Fatigue as a Consequence of Reduced Cellular Energy Availability and Non-adaptive Energy Expenditure. Fronteirs in Behavioural Neuroscience. 2018; 12, 00078
Tsai IC, Hsu CW, Chang CH, Tseng PT, & Chang KV. Effectiveness of Coenzyme Q10 Supplementation for Reducing Fatigue: A Systematic Review and Meta-Analysis of Randomised Controlled Trials. Frontiers in Pharmacology. 2022; 13, 883251
Costa ML, Sales CH, Neto JV, Sari FM, Rogero MM, & Fisberg RM. Vitamin E is associated with inflammatory biomarkers and metabolic syndrome: insights from a population study. Nutrition Research. 2025; 140, 161-172
Lauridsen C, & Jensen SK. α-Tocopherol incorporation in mitochondria and microsomes upon supranutritional vitamin E supplementation. Genes & Nutrition. 2012; 7, 475-482

Secret Link