Select Page

Pistill

MÖGNUÐ MORGUNRÚTÍNA & KYRRLÁT KVÖLDRÚTÍNA Í ANDA AYURVEDA

Greinar | VÖRUMERKI

Ef það er erfitt að vakna, ef þú hrynur í orku um miðjan dag, ert hvíldarlaus á kvöldin og glaðvakandi þegar þú átt að sofna?

Samkvæmt Ayurveda lífs- og jógavísindunum er lykillinn að góðum degi sá að lifa í takt við náttúruna. Í bókstaflegri merkingu og samkvæmt orkuflæði okkar þýðir það; að vakna áður en sólin rís og sofna þegar sól sest. Getur verið smá vandamál hér á landi, en engu að síður rútína sem nær að viðhalda jafnri og góðri orku frá morgni til kvölds.

Ayurveda mælir með föstum siðum kvölds og morgna sem sameiginlega eru nefndar dinacharya. Þessi margra alda gamla rútína sem margir nota enn þann dag í dag (því hún virkar) er hönnuð til að gefa ykkur ró, skerpu og notalega orku fyrir hugleiðslu og jóga. Og í raun fyrir öll þau verkefni sem við þurfum að takast á við frá degi til dags. Margir sem ná að halda þessarri einföldu rútínu vitna um að þeir fari átakalaust eða –lítið í gegnum daganna og geti almennt sinnt starfi sínu með natni og í fókus. Líka sem foreldrar sem og í öðrum lífsins verkefnum. Hlutstaðu á líkamann þinn, segir í Ayurveda, því hann er miklu klárari en hausinn á þér.

Til þess að komast á réttu slóðina hafðu rútínuna samkvæmt einföldum Ayurveda hefðum. Morgunrútínan byggir á því sem er orkugefandi og á hreinsun. En einnig á að kyrra/stilla skilningavitin og auka núvitund. Síðdegis- eða kvöldrútínan snýr að því að vinda ofan okkur svo við náum slökun og friðsælum svefni. Hreyfingar í anda jóga asanas og hugleiðsla eru lyklar að skráargati dinacharya. Íhugaðu að gera asana (sem eru jógahreyfingar til að auðvelda okkur hugleiðslu) á hverjum morgni fyrir morgunmat og síðan hugleiðslu á morgnanna og kvöldin. Gott er að byrja á einum degi í einu.

Til að byrja með er gott að hefja daginn á einni eða tveimur æfingum eftir þínu höfði svo bæta við sig eftir sem hentar og tími vinnst til. Og vitið þið til að með tímanum er hætt við því að þið viljið ALLS ekki sleppa úr degi. Líklegt er að ykkar Ayurveda rútína verði jafn sjálfsögð og sá háttur að bursta tennurnar á hverjum degi.

LJÓMAÐU – MORGUNRÚTÍNA AYURVEDA

Samvæmt Ayurveda eru stundirnar fyrir sólarupprás vata. Það er í raun afar fíngerð orka sem gerir okkur allt auðveldara, m.a. bara það að komast út úr rúminu. Já, prófið bara. Það að vakna fyrir sólarupprás gefur ykkur tindrandi orku sem endist út daginn. Á hinn bóginn, ef þú vaknar eftir sólarupprás tekur kafa orkan við en kafa er þung jarðarorka og þá er líklegra að við verðum silalegri það sem eftir er dags. Það er líka rólegra að vakna á vata tíma og mun þægilegra að hugleiða, þó ekki sé nema í 10 mínútur.

TUNGUSKAFAN, SÍTRÓNAN & NEFPOTTURINN

Þá er komið að tungusköfunni. Hún er í raun einfalt tól sem gerir mikið gagn. Yfir nóttina safnast það sem kallað er “ama” á tunguna en það eru samkvæmt Ayurveda eiturefni sem geta ýtt undir veikindi og eða sýkingar. Þetta er í raun afar einföld aðgerð sem auðvelt er að venja sig á. Og svo er bara að tannbursta sig.

Síðan er komið að því sem við þekkjum mörg hver mætavel: Það er að fá sér ½ sítrónu út í volgt vatn áður en þú borðar nokkuð annað. Sítrónudrykkurinn hreinsar nýrun og meltingaveginn og ýtir undir “agni” eða eldinn/brunan í meltingaveginum.

Neti Pot eða nefpottur er svo mjög gagnlegur gegn ofnæmum og til að fyrirbyggja kvef og ennis- og kinnholusýkingar. Gott að nota reglulega þótt ekki þurfi þess alla daga allt árið um kring.

NUDDAÐU LÍKAMANN UPP ÚR HEITRI OLÍU!

Nú er komið að því að nudda líkamann. Gerðu það alltaf þegar þú getur. Helst á hverjum morgni. Gefðu þér 10 mínútur. Ayurveda mælir með olíu fyrir þína líkams- hugagerð, sem hentar líka öllum týpum (vata, pitta og kafa). Hitaðu olíuna, t.d. undir heitri bunu, eða í potti, en ekki um of. Nuddaðu þig hátt og lágt áður en þú ferð í sturtu. Það er fátt notalegra en að nudda líkamann upp í heitri olíu. Vittu til. Byrjaðu á hársverðinum og taktu svo andlitið, hálsinn, axlirnar, hendurnar, handabökin og hendurnar með löngum hringlaga hreyfingum. Nuddaðu svo axlir og bak og síðan maga réttsælis. Nuddaðu einnig mjaðmir, rass, fætur, leggi og líka iljar, rist og tær og gerðu það vel. Því þar liggja margir mikilvægir taugaendar. Ef þú hefur tíma, á góðum degi (þú getur t.d. borðað á meðan í baðsloppnum) er gott að gefa húðinni 10 til 20 mínútur til að frásoga olíuna áður en þú ferð í sturtu. Ef þú vilt ekki setja olíu í hár eða andlit skaltu engu að síður nudda þau svæði. En þó er ekkert mál að ná olíunni úr hárinu. Galdurinn er sá að setja sjampó í hárið áður en þú bleytir það og nudda vel. Svo skaltu fara í sturtu og út í daginn.
Héru olíurnar sem við mæltum sérstaklega með.
VATA OLÍA.
PITTA OLÍA.
KAPHA OLÍA.

AÐ VINDA OFAN AF SÉR – KVÖLDRÚTÍNA AYURVEDA

Um leið og kvölda tekur, jafnvel síðsegis, (jú, jú við búum á Íslandi), dempaðu ljósin og dragðu fyrir eða nýttu þér skammdegið. Þá gefum við líkamnum og huganum merki um það að það sé að fara koma tími til að draga sig í hlé eða róa sig niður. Þar sem talsvert hefur breyst síðan þessi lífsvísindi þróuðust (þó alls ekki eins mikið og við höldum) segja nútímajógarnir að betra sé fyrir huga og líkama að sleppa því að horfa sjónvarp klukkustund áður en lagst er til hvílu. Að lesa eitthvað nærandi eða eyða tíma með fjölskyldu og vinum í ró og næði sé meira í anda Ayurveda. Og náttúrunnar.

NOTAÐU KJARNAOLÍUR!

Ef þú ert þreytt/ur er gott að láta renna í bað og setja í það róandi kjarnaolíur eða kveikja á kerti með góðum náttúrulegum slakandi ilmi, sem er líka gott að hafa jarðtengjandi. Dæmi um það eru lavender sem er róandi, vetiver sem er gjarnan notuð gegn streitu og ylang ylang sem er í senn rómantísk og róandi (fást lífrænar franskar í Systrasamlaginu ásamt olíum fyrir allar líkamsgerðir). Ef þú nærð að skapa róandi andrúmsloft og andar að þér ilmi býrðu líka til stemmningu sem heilinn mun smám saman festa í minni.

ÓMÓTSTÆÐILEG FÓTANUDD!

Fyrir svefninn er líka ákaflega gott að nudda á sér fæturnar og mörg dæmi um það að fólk sofi miklu betur ef það gerir það. Við mælum með því að fótanudd á kvöldin verði með fyrstu venjum þínum. Gott er að leggja áherslu á svokallaða marma punkta. Með því að nudda þessa punkta nærðu djúpri slökun á skömmum tíma. Notaðu aftur með olíu með jurtum fyrir þína líkams-hugargerð og hafðu hana volga eða heita. Ef þú vilt láta olíuna fara vel inn í húðina er gott að sofa í mjúkum bómullarsokkum.

RÓANDI KVÖLDDRYKKUR!

Fyrir svefinn er gott að fá sér heita lífræna mjólk með kardimommum eða múskati, eða fá sér góðan túrmeriklatté (að hætti Systrasamlagsins). En þetta eru krydd sem sannarlega bæta svefninn. En þar sem við vitum að margir drekka helst ekki mjólk er líka gott að fá sér kardimommur eða múskat í heitt vatn eða mjólk eða túrmeriklatté.

OG SVO AÐ LOKUM:

Það er líka mælt með því að ná sér niður með því að gera öndunaræfingar fyrir svefninn, hvort sem er fyrir eða eftir hugleiðslu. Mælt er með fáeinum mínútum í Nadi Shodhana. Þessi hreinsunaröndun róar taugakerfið og orkustöðvarnar og kemur stöðugleika á hugann.

Lokaðu hægri nös með hægri þumal. Andaðu inn í gegnum vinstri nös. Lyftu fingrinum af hægri nös og notaðu baugfingur til að loka vinstri nös og andaðu nú út um hægri nös. Andaðu því næst inn um hægri nös og settu svo þumalinn yfir, andaðu út um vinstri nös. Gerðu þetta 5 til 10 sinnum og svo er bara að halla sér og svífa sæll inn í draumaheima.