Pistill
OLÍA Í NAFLA FYRIR HÚÐ OG MELTINGU
Ayurveda | Greinar
Naflaolíunudd á rætur í Ayurveda og er ein hinna ævafornu leiða til að halda okkur ungum, hressum og sætum. Allt veltur á því hvaða góðu olíu þú notar. Naflaolíunudd snýst um að hreinsa naflann og fylla hann af nokkrum dropum af vandaðri olíu og líka nudda magasvæðið allt um kring. Þetta er allt gott að gera að kvöldi dags, á tóman maga, áður en við förum að sofa og láta þannig naflann drekka í sig olíuna.