Ertu með flensu, kvef, síhnerrandi og alltaf að snýta þér? Er hálsbólgan að hrjá þig eða bara almennur slappleiki? Orkuleysi? Margir glíma um þessar mundir við einhverja útgáfu af í að minnsta orkuleysi. Þá er gott að vita að vestrænu og austrænu fræðin búa yfir mögnuðum ráðum sem geta létt fólki lífið og flýtt upprisu. Margar austrænu aðferðanna hafa vestrænu vísindin þegar bakkað upp. En á meðan hin virta læknavísindastofnun Mayo clinic ráðleggur mikla vatnsdrykkju sem komi í veg fyrir ofþornun og losi um stíflur leggja hin fornu Ayurveda lífsvísindi til mikið af heitu vatni í sama og jafnvel ennþá áhrifaríkari tilgangi.
Ayurveda, systurvísindi jógafræðanna, eru nefnilega ögn nákvæmari og segja líkamann eiga mun auðveldara með frásoga heitt vatn en volgt eða kalt.
Hér er rökstuðningurinn:
Heitt vatn skoli burtu ama (eiturefnun) sem létti á ónæmiskerfinu
Heitt vatn næri slímhúðina um leið og það losar okkur við umfram slím.
Heitt vatn róar vata frumefnin sem búa í okkur öllum (þó í misstórum hlutföllum). Ofan á það bætist að vata er kalt og þurrt, eins og veturinn á Íslandi. Því er tvöföld ástæða fyrir Íslendinga að hafa vatnið heitt fremur en kalt eða volgt.
Ef flensan er á fyrstu stigum ráðleggur Ayurveda fræðingurinn John Doullard nokkra sopa af heitu vatni á 10 til 15 mínútna fresti í þrjá daga. Það geti snúið á flensuna.
Larissa Hall Carlson, skólastjóri hins virta Kripalu Ayurveda skóla í Massachusetts í Bandaríkjunum, ráðleggur okkur að láta fæðuna vera meðal okkar á flensutímum. Hún mælir með hreinun, heitum, léttum og einföldum mat og mikið af jurta- og grænmetisseyðum og teum. Og jafnframt mikið af vel elduðu grænmeti sem er á uppskerutíma. “Forðist þunga og massíva fæðu sem erfitt er að melta. Það eru mjólkurvörur, kaldir djúsar, kjöt og sætabrauð. Forðist einnig kaldan, frosin og þurran mat og líka hráfæði sem getur verið erfitt að melta, “ segir Larissa á heimasíðu Kriplau.
Gott að væta kverkarnar upp úr saltvatni. Saltvatnið losar um slím og hreinsar burt bakteríur og sveppi úr hálsinum. Mayo Clinic tekur undir það og segir saltvatn róa sáran háls og draga úr kláða.
Leysið ¼ til ½ tsk af salti (helst himalaya insk: pistlahöfundar) upp í 1 bolla af heitu vatni, segir á vefsíðu Mayo Clinic. Að baki þessum ráðleggingum liggur rannsókn sem birt var í The American Journal of Preventive Medicine. Um var að ræða samaburðarrannsókn. Annar hópurinn sem skolaði háls sinn þrisvar á dag var 40% fljótari að jafna sig af sýkingum í hálsi vegna kvefs eða flensu í samburði við þá sem ekki skoluðu á sér hálsinn upp úr saltvatni.
Borðaðu eða drekktu engifer. Margar vísindalegar rannsókir sýna og sanna að engifer dregur úr flensueinkennum, sljóleika og flökurleika og jafnvel úr vöðva- og beinverkjum. Ayurvedafræðnum hafa einmitt alltaf vitað að engifer er eitt öflugasta meðalið við kvefi. Engifer er beiskur í eðli sínu, sem dregur úr kafa, þessu blauta og þunga, sem býr í okkur öllum en fer gjarnan úr jafnvægi þegar við veikjumst.
Hitt er annað mál að það er ekki skynsamlegt að taka margar tegundir verkjalyfja á sama tíma og engifer. Því engiferinn er líka blóðþynnandi.
Í remidíu bók hins virta Vasant Lad Ayurvedalæknis er frábært ráð sem gagnast hefur mörgum vel. En það snýst um að fara í engifer andlitsgufu sem léttir á ennisholum og lungum. Sjóðið 1 tsk af fínsöxuðum lífrænum engifer í ½ lítra af vatni í stutta stund. Takið af hellunni. Þegar vatnið hefur kólna örlítið er gott setja blönduna í hitaþolna skál og handklæði yfir hausinn. Andið að ykkur gufunni í nokkrar mínútur. Endurtakið ef þess þarf.
Og auðvitað ráðleggja jógarnir líka djúpa öndun. Það dregur úr stífleika í brjóstkassann. Larissa á Kripalu jógasetrinu segir Drigha Pranayama, eða þriggja hluta öndun, áhrifaríkasta. Hún hefur áhrif á sefkerfið okkar, eða parasympatíska taugakerfið.
Það er afskaplega gott að styrkja ónæmiskerfið áður en harðasta tíðin nálgast.
Í Ayruveda fræðunum er alltaf ráðlagt að passa upp á að matur, vítamín og bætiefni séu lífræn og án aukaefna eða nastís, eins og Virdian lína Systrasamlagsins. Aukaefni valda ama (uppsöfnun eiturefna) í líkamanum og geta sannarlega verið ein af undirrótum þess að flensan leggst harðar á suma en aðra. Þarna kemur tunguskafanlíka sterkt inn sem við notum til að losa ama af tunginni. Best er að hafa agni eða meltingareldinn skíðlogandi, ama geti sannarlega verið til ama (ama er sögð í jógafræðunum vera í allt að 90% tilfella orsök flensu).
Heimildir m.a.:
http://www.mayoclinic.org/
Systrasamlagið notar vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda og eðlilega virkni á vefnum. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka. LOKA
Persónuvernd
Privacy Overview
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.