Ef þú þráir umfram allt ekki bara góða heldur frábæra heilsu og vilt halda þér ungum/ungri sem allra lengst er lykilatriði að rækta Ojas-ið. Ojas er orð úr Sanskrít og merkir í stuttu máli sterk lífsorka sem birtist allt í senn sem líkamlegur styrkur, gífurlega öflugt ónæmiskerfi, falleg húð og tifandi andi.
Ojas er eitt af stóru hugtökunum í indversku lífsvísindunum (Ayurveda) og er jafnan sögð hrein og fíngerð efni (orka) sem leysist úr læðingi þegar við meltum matinn sem við borðum og líka tilfinningar okkar og aðra umhverfisþætti. Þegar allt er eins og það á að vera. Líffræðilega er Ojas sú orka sem fer í hringrás um öll sjö vefjakerfi líkamans. Þegar við framleiðum mikið Ojas (einnig kallaður hunangslögur lífsins) finnum við til alsælu. Þá erum við að fá alla þá líkamlegu og andlegu næringu sem við þurfum á að halda.
Helstu merkin um hátt Ojas:
Líkamlegt:
-
Geislandi yfirbragð
-
Neisti í augunum
-
Líkamlegur styrkur
-
Framúrskarandi orka
-
Virk skilningavit
-
Engir verkir
-
Frábær heilsa og sterkt ónæmiskerfi
-
Léttur líkami og hugur
Hugur og tilfinningar:
-
Skýrleiki og fókus
-
Sterk lífsorka
-
Sterk sköpunarorka
-
Almenn vellíðunartilfinning
-
Hamingja og gleði
Til þess að komast í sem bestu tengslin við Ojas-ið mæla indversku lífvísindin aðallega með hreinni fæðu sem er jákvæð og nærandi. Fæðutegundir sem eru sagðar byggja upp besta Ojas-ið er matur sem býr yfir því að vera sætur, eðlisþungur/mettandi, olíukenndur, kælandi og mjúkur (ojá, aldrei vanmeta sætuna). Það eru t.d. döðlur, möndlur, ghee, saffran, sesamfræ, heilt korn (basmati hrísgrjón og hafrar) og jafnvel lífræn mjólk. Fast á hæla þess fylgja avócadó, bananar (mjög þroskaðir), fíkjur, sætar kartöflur, kúrbítur, hnetur (en þó sérstaklega möndlur), mung baunir (notaðar í kitcheri, hreinsunarétt jóganna) og ferskir árstíðarbundnir ávextir. Ein besta Ojas jurtin þykir svo hin margumtalaða jógajurt Ashwagandha en fleiri eru nefndar eins og kardimommur, túrmerik, pippali (langi piparinn) og jurtablandan Triphala.
Öllu erfiðara fyrir líkamann er að vinna úr þurrum mat og hráfæði en líka kjöti og fiski, en þó einkum mikið og illa unnum ónáttúrulegum mat. Fæða sem er of sölt eða súr, niðursoðin og frosin gerir lítið fyrir Ojas-ið. Jafnframt er áfengi sagt draga verulega úr Ojas-inu.
Þegar heilbrigt Ojas flæðir um líkama okkar vöknum endurnærð, húðin ljómar, tungan er hrein og bleik, við finnum karftinn og birtuna innra með okkur á öllum sviðum. Hugsunin er skýr, meltingin sterk og við ilmum.
Merki um lágt Ojas er oft merki um “ama” eða óhreinindi í líkama og sál (ómeltan mat og tilfinningar) og birtast sem andremma, skán á tungu (nota tungusköfu), lítil matarlyst, viðkvæm melting, stífni í líkama og sál, pirringur, þyngsli, þreyta, óskýrleiki, orkuleysi og þegar fólk er oft lasið.
Helstu merkin um lágt Ojas:
Líkamlegt:
-
Þurr húð
-
Kaldar hendur og færur
-
Veik skilningavit (ofurnæmi fyrir hljóði og ljósi)
-
Eymsli í vöðvum og liðum
-
Þyngsli líkama og anda
-
Minni líkamleg hæfni
-
Orkuleysi og þreyta verður algeng
-
Færð oft flensu
Hugur og tilfinningar:
-
Þokukenndur hugur
-
Léleg einbeinting
-
Neikvætt viðhof til lífsins
-
Ótti
-
Þunglyndi og eða einmannaleiki