Select Page

UPPSELT. ALLT UM MELTINGUNA. Það besta úr AUSTRÆNUM og VESTRÆNUM vísindum. 18. október

12.000 kr.

VÖRULÝSING

Fyrirlesari: Heiða Björk Sturludóttir Ayurvedaráðgjafi og næringarþerapisti með meiru.
Hvenær: 18. okt frá 17:30-21:00
Verð: 12.000 kr
Innifalið: Léttur indverskur/Ayurvedískur hrísgrjóna og baunaréttur (kitchari), meltingarte og frábærar upplýsingar.

 

Ekkert er mikilvægara en góð melting og upptaka næringarefna til að viðhalda góðri heilsu. Um það eru bæði vestræn næringarþerapía og austurlensku vísindin, Ayurveda, sammála.

 

Í Ayurveda fræðunum byggir góð heilsa á öflugum AGNI, meltingar- og efnaskiptaeldi. Veikur meltingareldur er ávísun á veikindi ef ástandinu er ekki kippt í lag fljótlega.

 

Á síðdegis/kvöldnámskeiði verður meltingarvegurinn útskýrður og hvað þar getur farið úrskeiðis, með hugtökum vestrænna vísinda. Fjallað er um áhrif streitu á meltingu, hvernig magasýra, meltingarensími, góðgerlar og gall skipa öll mikilvægann sess í meltingu. Hvað dregur úr þessum mikilvægu meltingarvökvum og hvernig er hægt að styrkja framleiðslu þeirra. Það er líka mikilvægt að velta vöngum yfir hvernig fæðu þú velur. Er hún lífræn, fersk? Skoðar þú næringuna? Hér er líka gott að staldra við og skoða málin.

 

Einnig verður fjallað um mikilvægi góðrar hægðalosunar en það er jafn mikilvægt að losa út úrgangsefnin eins og að taka inn næringarefnin. Margvísleg ráð verða gefin til að bæta meltingu og hægðalosun s.s. æfingar, lífsstíll, mataræði, jurtir og bætiefni.

 

Því næst er farið í Ayurveda fræðin og útskýrt hvernig við getum styrkt meltinguna og efnaskiptin með því að styrkja AGNI og með því að lifa og borða í samræmi við hrynjandi náttúrunnar.

 

Rannsóknir sýna sílfellt betur að hvað við setjum ofaní okkur, hvernig okkur tekst að melta matinn og losa okkur við úrgangsefnin hafi gríðarleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu.
En, þetta vissu sérfræðingar Ayurveda lífsvísindanna fyrir 5000 árum. Það er gaman að sjá hvernig þessi tvö ólíku kerfi vísinda eru að komast að sömu niðurtöðu á síðustu áratugum.

Sala á plássum er hafin.

 

Innifalið í námskeiði:

  • Prentuð gögn með helstu áhersluatriðum.

  • Fræðsla um meltingarveginn og meltingareldinn AGNI.

  • Kenndar eru æfingar sem styrkja meltingu og losun hægða.

  • Te og kitchari.

  • Uppskrift að AGNI tei.

  • Uppkriftir að kitchari

  • Fjallað um nokkrar jurtir og bætiefni sem geta styrkt meltingu og losun úrgangsefna.

  • 20% afsláttur af vítamínum og bætiefnum í Systrasamlaginu.

  • 20% afsláttur af fyrsta tíma í næringar- og ayurveda ráðgjöf hjá Heiðu Björk (gildir út árið).

FYRIRLESARINN, Heiða Björk Sturludóttir, er næringarþerapisti (DipNNT), Ayurveda ráðgjafi (AWC) jógakennari, umhverfisfræðingur, sagnfræðingur og framhaldsskólakennari.

Heiða Björk hefur haldið fjöldann allan af námskeiðum um næringu og heilsu m.a. í samvinnu við Systrasamlagið við miklar vinsældir. Á þessu námskeiði samþættir hún þekkingu vestrænnar næringarþerapíu og hinna fornu lífsvísinda Ayurveda sem eiga uppruna sinn að rekja til Indlandsskagans og eru yfir 5000 ára gömul.

Sjá nánar um Heiðu og margvíslega fræðslu um heilsutengd málefni á www.heidabjork.com

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á