Select Page

Fljótandi viðarhreinsir fyrir útihúsgögn og veröndina með góðgerlum. Ecocert vottaður

Prófaðu glænýja úti viðarhreinsinn frá Byoms.
Byoms systur eru ekki bara brilljant í innihreinsivörum.  Þær líka þróað viðarhreinsi fyrir útihúsgögn, veröndina og annað tréverk sem inniheldur heslihnetuolíu. Niðurstaðan er virkur, sniðugur og náttúrlegur viðahreinsir fyrir veröndina, garðhúsgögnin, handrið og svo margt fleira.

Öll innihaldsefni eru lífbrjótanleg, svo þú getur með góðri samvisku hellt umfram vatni og sápu í jarðveginn / grasflötina.

Sem dæmi nær 1 brúsi nær yfir allt að 200 m2 djúphreinsun á verönd (200 fermetra).

Þessi utandyra viðarhreinsir inniheldur góðgerla þannig að þú nærð á dýptina inn í harðviðinn sem hefur dregið ýmislegt í sig yfir veturinn. Ennfremur halda góðgerlarnir áfram að brjóta niður óhreinindin í allt að 8 daga.

Hráefni Wood Cleaner eru af náttúrulegum uppruna og því 100% lífbrjótanleg. Varan er algjörlega laus við ilmi, rotvarnarefni og aðra ofnæmisvalda.
Varan er EcoCert vottuð og með Vegan V-merki.
Umbúðirnar eru úr 100% endurunnu plasti.

Náttúrulegt þvottaefni vottað af ECOCERT Greenlife samkvæmt ECOCERT staðlinum sem er að finna á http://detergents.ecocert.com/en.

1.650 kr.

VÖRULÝSING

Innihald:

5-15% anjónísk yfirborðsvirk efni *, <5% ójónísk yfirborðsvirk efni *, <5% sápur. Inniheldur einnig: vatn, salt, heslihnetuolíu, örverur.
* Plöntubundin yfirborðsvirk efni.

98,6% innihaldsefna eru af náttúrulegum uppruna.
Inniheldur lifandi probiotic bakteríur bacillus coagulans.

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á