Inspire. Silfur
Að lifa innblásnu lífi er að lifa lífi í samræmi við gildin þín, lífi sem er þroskandi og tilgangsríkt. Með umhyggju fyrir líkama þínum, huga og sál. Að vera innblásinn er að velja ást fram yfir ótta, velja samúð, góðvild og gleði. Að vera hugrakkur og blíður í ljósi áskorana lífsins; líka hugrakkur og óttalaus þegar þú tekur áhættu. Að taka breytingum og ófullkomleika. Að vera þú sjálfur og elska sjálfan þig. Að vita að jafnvel þegar þú gerir mistök geturðu valið aftur og haldið áfram að halda áfram. Alltaf að læra, aflæra, þróast, dafna, tengjast, skapa. Að lifa snortin/innblásin er að lifa lífi sem er þess virði að lifa því.
6.500 kr.
VÖRULÝSING
MÖNTRU ARMBÖNDIN eru einföld og elegant armbönd með fínlegu yfirbragði. En um leið djúpum undirtón í gefandi orðum og setningum sem minna á það besta sem lífið hefur fram að færa. Fallegt skart. Hvetjandi áminning. Veita sannarlega innblástur, næra, gefa, skreyta og fegra.
Innihalda
MÖNTRU ARMBÖNDIN eru laus við ofnæmisvalda og innihalda ekki nikkel eða blý. Gylltu Möntru Armböndin sem og þau úr rósagulli eru úr sama efni og silfurarmböndin en með 18 karata sterkri gullhúð, sem hvorki fellur á né missir gljáa og endist vel. MÖNTRU ARMBÖNDIN má móta og aðlaga úlnlið hvers og eins. Hönnuð af ást & umhyggju ungra hönnuða í LA.
Meðhöndlun
Strjúkið af með mjúkum klút. Forðist mikla snertingu við sterk hreinsiefni, hvíttunarefni og kemísk ilmvötn. Gott að geyma í skartgripakassa eða í mjúkum klút. Við mælum með að þið farið hvorki með þau í bað, sund, heita potta eða gufubað.
Fleiri tegundir möntru armbanda fást í Systrasamlaginu.






