NAILBERRY. Gel yfirlakk sem andar. HALLÓ: Það hefur orðið bylting.
Taktu handsnyrtingu heima hjá þér upp í nýjar hæðir með byltingakennda gelkennda yfirlakkinu frá Nailberry. Það tærsta úr smiðju Nailberry (sem er þó hreint fyrir). Laust við 25 efni sem sannarlega mega missa sín þegar kemur að gelmeðferðum. Gælir við neglurnar, andar, hleypir í gegn súrefni og raka og innsiglar aðra líflega Nailberry liti með spegilsléttum gljáa. Flagnar ekki og lengir mjög í lakkinu án þess að það þurfi að koma til útfjólublátt ljós eða LED lampi. Þess í stað er notuð svokölluð “3D reactive” tækni þar sem lakkið er hert með sólarljósi.
Það sem er þó enn magnaðra; þessi spegilslétta gjáandi og fljótþornandi einkaleyfisvarða formúla heldur nöglunum þínum hreinum og heilbrigðum undir gellakkinu.
HALLÓ. Hér er boðið upp á þykkari, háglansandi, spegilsléttar og heilbrigðar gel neglur og allt framkvæmt heima, úr þínum þægilega sófa eða við eldhúsborðið.
3.900 kr.
VÖRULÝSING
NOTKUN:
Til að ná sem bestum árangri og hinni fullkomnu náttúrulega fallegu handsnyrtingu er gott að nota eitt lag af Strengthen & Breathe Base Coat eða Bare Essential undir eina til tvær umferðir af L’Oxygéné Nailberry lakkinu sem þú hefur valið. Þegar lakkið er orðið þurrt við snertingu lýkur þú lökkuninni með einu lagi af UV Gloss Top Coat. Lokaðu brúnum á hverri nögl og láttu þorna alveg. Mjög auðvelt er að fjarlægja lakkið af með þessu heilbrigða geli (engin þörf á að liggja í vökva). Þú nærð því auðveldlega af með hinum margverðlaunaða Clean Nail Color naglalakkaeyði frá Nailberry.
HELSTU KOSTIR:
Gel-lík áhrif – njóttu þessarra dúndurs slitsterka og háglansandi formúlu í UV Gloss Top Coat.
Andar – þessi einstaklega súrefnisríka formúla virðir lífeðlisfræði naglana, svo þær þorna ekki undir lakkinu.
Lampalaus – þessi framúrskarandi formúla notar þrívíða tækni fyrir endingargóða, litaverndandi áferð. Auðvelt að fjarlægja – ekki „sóðalegt“ þarf til að taka það af.Notaðu einfaldlega naglalakkaeyðinn Clean Nail Color Remover frá Nailberry.
25-free – formúlan er laus við 25 skaðleg innihaldsefni, þar á meðal akrýlsýru, metakrýlsýru, hringlaga sílikon og fleira.





